Fann enga grípandi fyrirsögn

Hafið þið kíkt í þessa frábæru laug? Það hef ég, 18 sinnum. Hún er einkar vel úr garði gerð og það hafa sundfélögin líka uppgötvað.

Nú má ekki skilja skrif mín þannig að ég hafi eitthvað á móti ungu fólki sem vill iðka sund en bíðum við, sundfélögin hafa gersamlega lagt þessa laug undir sig. Það eru engar ýkjur.

Flest fólk er í reglulegri vinnu. Eftir vinnu og fram á kvöld er síðan tími, til dæmis til að synda. En þá vandast málið. Sundfélög hafa lagt undir sig laugina. Og ef maður ekki tekur mark á þessum frátekið-merkjum, kemur fljótlega einhver gæi með flautu og bablar eitthvað á austurevrópsku máli og í kjölfarið kemur bólugrafinn unglingur og túlkar þetta. "þú mátt synda á braut 7 og 8 feiti kall", með hinum feitu köllunum og kellunum. svo er líka pláss í barnalauginni.

Hallo;;;; er ég ekki að borga hér útsvar. Ég borga mig líka ofan í.

Í tvígang hef ég spurt starfsfólkið hvort ekki er hægt að fá stundatöflu svo maður kannske geti skotið sér milli æfinga, en nei, það er ekki hægt þar sem enn er verið að bóka sundæfingar.

Minnisvarði? Nei ekki frekar en margt annað sem búið er að henda aurum í undanfarið. Frábær sundlaug sem haldið er í herkví sundfélaga.


mbl.is Minnisvarði óráðsíu?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Saltið er sökudólgurinn

Þessi árlega umfjöllun um skaðsemi nagladekkja er ávallt undanfari frétta um það hvað göturnar eru illa farnar. Undarlegt að þessum snillingum hjá borginni og vegagerðinni skuli aldrei detta í hug að tengja þetta saltaustrinum sem þeir standa fyrir. Saltdreifing hefur aukist jafnt og þétt og nær hæstu hæðum á þessum vetriSanniði til, ekki er langt þar til fréttir berast um það hversu mörg þúsund tonn af salti hefur tekist að dreifa.

Þó svo að umferð hafi dregist saman og færri aki á nöglum slitna göturnar jafn mikið eða meira en síðasta vetur.  Þetta er svo sem ekkert undarlegt þar sem göturnar eru baðaðar pækli nánast alla daga. Það virðist engin hugsun búa að baki, bara út með ykkur að salta. þeir salta jafnvel þurrar götur, afsökunin, það á að frysta í nótt.

Afleiðingarnar, auk gatnaslits, eru umhugsunarverðar. Þegar tjaran í malbikinu leysist upp af völdum saltsins sest hún í dekkin. Við það límist saman fínasta mynstrið, það sem á að gefa grip í snjó. Þar með er búið að gera dekkið gagnslítið í snjó. Hluti tjörunnar sest utan á bílinn, bindur þar í sig salt og skít og viti menn, bíllinn er bara skítugur eftir nokkra km. í slabbinu. Hafi maður áhuga á að hafa bílinn þokkalega hreinan skal maður punga út þúsundkalli fyrir líter af tjöruhreinsi. Rúðupissið er alltaf tómt, það hefst ekki undan að setja á það.

Síðast en ekki síst er það mjög slæmt fyrir bílinn að vera stöðugt í saltbaði. Hann riðgar á miklu skemmri tíma, bremsudiskar slitna helmingi hraðar og þar með klossar, þurrkublöð og svo mætti lengi telja.

Nú, svo þornar, það lægir og svifrikið tekur völdin. Hversu stór hluti þess er beinlínis salt?

Hvernig væri nú að hætta að verja dýrmætum gjaldeyri til saltkaupa og láta umferðina bara keyra á snjóþekju og hlífa götunum? það má eftir sem áður halda götunum hreinum, jafnvel betur því ekki þarf snjóruðningstækið að fara og sækja meira salt oft á dag.

Jú, þetta myndi hægja á umferðinni, en er það ekki bara í lagi, hún er hvort sem er of hröð. Og þeir fáu skussar, sem ekki skipta á vetrardekk og treysta á saltið, þeir læra fljótt að halda sig bara með drusluna heima. 

Þess má til gamans geta að þeir hinir sömu dreifa saltinu í borginni á veturna og malbika á sumrin.

 


mbl.is Dregur úr notkun nagladekkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skítt með alþjóðaálit.

Var ekki nóg að maðurinn skyldi úthluta 30.000 tonnum af fríum þorskkvóta til kvótagreifanna til að braska með, þó ekki kæmi þetta í ofanálag. Hvert telur hann sig sækja umboð til að ófrægja land og þjóð enn frekar en orðið er, og það til næstu fimm ára. Haldi hann sig hafa tryggt sér einhver atkvæði með þessu, er hann hei...... en hann lítur út fyrir. Svei valdníðingi.
mbl.is Hvalveiðar leyfðar til 2013
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband